
Kentucky mannætan
Um bókina
Árið 1850 hélt Boone Heim á vit gullæðisins í Kaliforníu eftir að hafa skilið við konu sína og komist margsinnis í kast við lögin. Frændi hans einn ætlaði að slást í för með honum en þegar sá skarst úr leik á síðustu stundu missti Heim stjórn á sér og drap hann. Hann var í kjölfarið lagður inn á geðveikrahæli.
En honum tókst að sleppa út af hælinu og hélt síðan ótrauður af stað vestur á bóginn.
Á leiðinni hikaði hann ekki við að drepa ferðafélaga og þá sem stóðu í vegi fyrir honum. Jafnframt tók hann upp á því að leggja þá sér til munns eftir drápin. Þetta spurðist og fékk hann viðurnefnið Kentucky-mannætan. Loks komst hann til Kaliforníu þar sem lög og regla voru enn af skornum skammti.
Í villta vestrinu fékk villimennska Heims að njóta sín um skeið.
Kentucky-mannætan er áhrifamikil frásögn af blóðugum ferli morðingjans og mannætunnar Boones Heim. Eins og í fyrri bókum skrifar Ryan Green á kraftmikinn og lifandi hátt eins og í bestu spennusögu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app