
Kastaníumaðurinn
Um bókina
Í rólegu úthverfi Kaupmannahafnar finnst kona myrt og skelfilega limlest – aðra hönd hennar vantar. Fyrir ofan líkið hangir brúða gerð úr kastaníuhnetum. Á henni er fingrafar Kristine, tólf ára dóttur ráðherrans Rosu Hartung, sem hafði horfið ári fyrr. Eftir mikla leit var talið fullsannað að hún hefði verið myrt. Ungur maður játaði á sig morðið og situr bak við lás og slá …
Skömmu síðar finnst önnur kona myrt og á vettvangi er annar kastaníumaður með fingrafari Kristine. Getur verið að hún sé á lífi? Hvað gengur morðingjanum til? Og hver verður næstur?
Søren Sveistrup á heiðurinn af sjónvarpsþáttunum Forbrydelsen (Glæpurinn) sem hafa verið sýndir í yfir 100 löndum, fengið metáhorf og sópað að sér verðlaunum. Hann þykir hafa einstakt lag á að byggja upp spennu og hefur Kastaníumaðurinn, sem er fyrsta skáldsaga hans, einnig verið gerð að Netflix-seríu sem hefur slegið rækilega í gegn.
Ragna Sigurðardóttir þýddi og Þuríður Blær Jóhannsdóttir les.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.490 kr
Sækja app