Heim › ...
Kærasti bestu vinkonu minnar eftir Anna Keiler - hljóðbók

Kærasti bestu vinkonu minnar

9 klst 22 mín
Lind & Co

Um bókina

Eftir skilnaðinn hefur Caroline nær gefið upp alla von um sanna ást – þar til hún verður bálskotin í manni sem er gestkomandi á hjúkrunarheimilinu þar sem föðuramma hennar dvelur. Þar sem maðurinn ber giftingarhring reynir hún að bæla niður tilfinningarnar en hann á hug hennar allan, jafnvel löngu eftir að fundi þeirra lýkur.Adam hefur ekki enn náð að jafna sig eftir harmleikinn sem dundi yfir hann fyrir tveimur árum. Hann lifir einmanalegu og vanabundnu lífi og vinir hans telja að nú sé orðið tímabært fyrir hann að breyta til.

Þeir sannfæra hann um að byrja að hitta konur sem hann fellst treglega á. Í gegnum stefnumótaforrit kynnist hann síðan Jenny sem tekur lífinu létt og gæti vonandi verið það sem hann þarfnast.Þegar Jenny, vinkona Caroline, kynnir hana fyrir nýja kærastanum sínum, Adam, fær Caroline algjört áfall.

Þetta er hann – maðurinn sem hún getur ekki hætt að hugsa um! Til að svíkja ekki vinkonu sína reynir Caroline að gera allt sem í hennar valdi stendur til að leyna tilfinningum sínum fyrir Adam en að lokum gefst hún upp og tekur ákvörðun sem gjörbreytir lífi hennar.„Kærasti bestu vinkonu minnar“ er rómantísk og gamansöm skáldsaga um vináttu, ást og fjölskyldutengsl, ásamt því að þora að sleppa tökunum á fortíðinni, fylgja draumum sínum og gefa ástinni nýtt tækifæri.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán