Heim › ...
Jólin hans Hallgríms eftir Steinunn Jóhannesdóttir - hljóðbók

Jólin hans Hallgríms

1 klst 2 mín
JPV

Um bókina

Það eru að koma jól. Hallgrímur hlakkar til en hann hefur nóg að gera meðan hann bíður. Mitt í öllu annríkinu verður svo óvæntur atburður – hálfgert kraftaverk. Jólin hans Hallgríms segir frá aðventunni í Gröf á Höfðaströnd árið 1621 þegar Hallgrímur Pétursson er sjö ára gamall. Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við jólahald heimilisfólksins í Gröf, og þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna þótt myrkrið grúfi yfir. Steinunn Jóhannesdóttir hefur skrifað sögulegar skáldsögur um bæði Hallgrím Pétursson og Guðríði konu hans.

Hér kynnir hún Hallgrím í fyrsta sinn fyrir ungum lesendum í hugljúfri sögu sem prýdd er glæsilegum myndum eftir Önnu Cynthiu Leplar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 990 kr