Heim › ...
Jólaræninginn eftir Bjarni Fritzson - hljóðbók

Jólaræninginn

Höfundur: Bjarni Fritzson

0
Vaka-Helgafell

Um bókina

Mafíósarnir skokkuðu af stað í áttina til mín. Ég stóð frosin í sporunum og sá skyndilega eftir því að hafa ekki sleppt þessum bévítans jólaís. Ekki að ég hefði haft neitt val. Ég var harðákveðin í að halda svakalegustu jól allra tíma og þar var jólaísinn í lykilhlutverki.

Kæri lesandi. Stuttu fyrir jól varð alvarlegt slys sem setti allt í uppnám. Skyndilega þurftum við Alex, litli bróðir minn, að verja jólunum hjá Geirþrúði, fjarskyldri frænku okkar í skuggalegu iðnaðarhverfi. Fljótt kom í ljós að Geirþrúður var vægast sagt hræðileg manneskja sem hataði bæði jól og börn. Þá gaf ég Alex loforð um að ég myndi halda rosalegustu jól allra tíma, þrátt fyrir að ég hefði enga hugmynd um hvernig ég ætlaði að gera það. Og þannig upphófst magnaðasta jólaævintýri lífs míns. Kveðja, ZARA

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Hlustaðu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni