Heim › ...
Jólakransar og nývaknaðir draumar eftir Christina Wahldén - hljóðbók

Jólakransar og nývaknaðir draumar

9 klst 0 mín
Lind & Co

Um bókina

Allt sitt líf hefur Lisu Blomgren dreymt um að reka gróðrarstöð. Þegar hún er komin á eftirlaun og eiginmaður hennar deyr skyndilega selur Lisa raðhúsið og kaupir aflagða gróðrarstöð í litla iðnaðarbænum Söderfors á eyju í Dalelfi. Hún flytur þangað ásamt hundinum sínum, Bosse, sem er kynblendingur. Loksins rætist draumur hennar! Áætlunin er að selja framandi plöntur fyrir ævintýragjarna ræktendur … jafnvel þó að það henti ekki beint gróðurbeltinu í Norduppland. Hún þarf að fá inn tekjur sem fyrst til að gera upp vanhirta gróðrarstöðina og borga fyrir ólífutrén, sítrónutrén, ferskjutrén og vorlaukana sem hún pantaði.

Gætu námskeið í kransagerð á herragarðinum og ljósakeppni átthagafélagsins ef til vill hjálpað til? Lisa vingast við Gullu, óperusöngkonu á eftirlaunum, sem er á flótta undan heimaþjónustunni og Cindy, sem rekur nytjaverslunina Annað tækifæri. Hver er svo þessi dularfulli maður á hestbaki sem líkist mjög glæsilega breska garðyrkjufrömuðinum Monty Don?

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán