
Jóhannes Einarsson - Minningabrot
Höfundur: Jakob F. Ásgeirsson
Flytjandi: Jóhann Sigurðarson
Um bókina
Jóhannes Einarsson verkfræðingur hefur átt fjölbreytta starfsævi, þótt hann sé fyrst og fremst kunnur fyrir að hafa haslað sér völl í alþjóðlegum flugheimi. Að loknu verkfræðiprófi í Bandaríkjunum var Jóhannes einn af fyrstu starfsmönnum Íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli. Síðan var hann í sex ár verksmiðjustjóri í nýrri verksmiðju Coldwater, fisksölufyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum.
Eftir það réðst hann til Loftleiða sem þá var á hátindi velgengnisára sinna. Sem einn af framkvæmdastjórum Loftleiða vann Jóhannes meðal annars að stofnun Cargolux í Lúxemborg. Þangað flutti Jóhannes svo á miðjum aldri og varð einn af yfirmönnum Cargolux sem á fáum árum varð eitt af stærstu vöruflutningafélögum heims.
Þegar Jóhannes lét af daglegum störfum varð hann ræðismaður Íslands í Mónakó.
Í þessari bók rekur Jóhannes viðburðarika starfsævi og segir hispurslaust frá því sem á daga hans hefur drifið — ekki síst hörðum átökum í viðskiptalífinu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app