
Um bókina
Veturinn leggst yfir Ísafjörð, jólin nálgast. Eftir áratuga aðskilnað er Hildur loks komin í samband við aðra systur sína, Björk, en um hina, Rósu, veit hún ekki neitt og Björk er þögul sem gröfin. Jakob, félagi Hildar í lögreglunni, er órólegur vegna forræðisdeilu sem hann stendur í og býr sig undir ferð til Finnlands þar sem réttað verður í málinu.
Þegar illa leikið lík finnst við laxeldisker í grennd við bæinn eru Hildur og Jakob kölluð til en rannsókn er ekki fyrr hafin en framið er annað ofbeldisverk sem virðist tengjast því fyrra, og svo það þriðja og fjórða. Alls staðar koma dýr og dýravernd við sögu og – merkilegt nokk – íslensku jólasveinarnir. Hver stendur að baki þessu öllu?
Leikurinn berst ekki aðeins víða um Ísland heldur líka til Noregs og Finnlands, og hvarvetna lendir okkar fólk í óvæntum aðstæðum þegar ótal þræðir sögunnar vindast hver um annan.
Jakob er þriðja saga hinnar finnsku Satu Rämö um ísfirsku lögreglukonuna Hildi og fólkið í kringum hana. Bækurnar hafa komið út í mörgum löndum við miklar vinsældir og sjónvarpsþættir verið gerðir eftir fyrstu bókinni.
Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.
Kynning
Hvernig virkar þetta?
- 1Kauptu bókina
Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu
- 2Sæktu Sagnaland appið
Fáanlegt í App Store og Google Play
- 3Lestu hvar sem er
Bókin birtist í bókahillunni þinni
Sækja app