Heim › ...

Um bókina
Íslenskur aðall gerist sumarið 1912 þegar Þórbergur Þórðarson var rúmlega tvítugur og segir frá misheppnuðum tilraunum hans til að ná sambandi við „elskuna“ sína; stúlkuna sem hann þráir. Sumarvinna hans hefst norður í Hrútafirði, skammt frá heimili hennar, svo heldur hann til Siglufjarðar og þaðan til Akureyrar í síld, snýr síðan til baka og endar á hinni frægu framhjágöngu.
Í leiðinni kynnist hann hópi af lífsglöðum piltum sem flestir þrá að verða skáld og aðeins tímaspursmál hvenær þeir sigra heiminn. Grátbrosleg ævintýri þeirra í frásögn Þórbergs hafa skemmt íslenskum lesendum í meira en sjötíu ár. Upptakan er í eigu RÚV en gefin út skv.samningi um rétt til endurgerðar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app