Heim › ...
Íslandsævintýri himmlers eftir Þór Whitehead - hljóðbók

Íslandsævintýri himmlers

6 klst 34 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Bókin um áform þýskra nasista um yfirráð á Íslandi. Sameining Íslands og Hitlers-Þýskalands var á dagskrá hjá Heinrich Himmler, yfirforingja SS og þýsku lögregunnar i Berlín. Erindreki Himmlers, SS-foringinn Paul Burkert, fór um Ísland og reyndi að veiða innlenda ráðamenn í net sitt. Himmler mæ´lti til vináttu við Hermann Jónasson forsætisráðherra með sérstæðum hætti. Einnig sendi hann hingað hóp SS-manna og Gestapoforingja sem síðar urðu kunnir um allan heim fyrir fjöldamorð, undirróður og njósnir.

Þjóðverjar höfðu uppi áform um stóriðjuframkvæmdir á Íslandi, landnám og byltingarþjálfun. Þór Whitehead fylgir í bókum sínum ítrustu kröfum sagnfræðinnar en tekst jafnframt að hrífa lesendur með ljósri og lifandi frásögn. Vinnubrögð Þórs og stíll hafa áunnið bókum hans sess á metsölulistum. Árið 1996 hlaut Þór Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina Milli vonar og ótta.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán