
Um bókina
„Það var gripið fast um axlir hennar. Hún fann heitan másandi andardrátt við hálsinn. Klær klipu í holdið. Rispuðu og rifu í það. Sársaukinn var nístandi sár en Dagbjört streittist á móti af öllu afli. Hún var sterk, fann fyrir hverjum vöðva líkamans en allt kom fyrir ekki. Hrammarnir þrýstu henni niður, neglurnar boruðu sig inn fyrir húðina. Hún var keyrð niður í gólfið af villidýri."
Það er órói í samfélaginu. Eitthvað slæmt liggur í loftinu. Þegar Dagbjört, samfélagsmiðlastjarna í blóma lífsins, hverfur sporlaust þarf Guðgeir að hafa sig allan við að leysa málið. Hver klukkustund telur og eftir því sem líður á rannsóknina rætist versta martröð lögreglunnar. Hvarf Dagbjartar er ekki einangrað tilvik.
Ísbirnir er níunda bók Sólveigar Pálsdóttur en bækur hennar hafa komið út í nokkrum löndum og hlotið mikið lof. Sólveig hlaut Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bók sína Fjötrar. Sama ár var hún útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness, fyrst rithöfunda.
Hvernig virkar þetta?
- 1Kauptu bókina
Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu
- 2Sæktu Sagnaland appið
Fáanlegt í App Store og Google Play
- 3Hlustaðu hvar sem er
Bókin birtist í bókahillunni þinni
Sækja app