Heim › ...
Inngangur að efnafræði eftir Bonnie Garmus - hljóðbók

Inngangur að efnafræði

13 klst 32 mín
Mál og menning

Um bókina

Efnafræðingurinn Elizabeth Zott er svo sannarlega engin venjuleg kona og þegar hún ræður sig í starf á rannsóknarstofnun í Kaliforníu á sjöunda áratugnum þarf hún að takast á við alls kyns fordóma og berjast með kjafti og klóm fyrir viðurkenningu í karlaheimi. Hún ávinnur sér þó aðdáun og virðingu eins manns, ungs snillings sem er talinn líklegur til að vinna Nóbelsverðlaun – og ástin sameinar þau gegn öllum.

En ekki fer allt eins og ætlað er og fáeinum árum seinna er Elizabeth einstæð móðir sem stýrir vinsælasta matarsjónvarpsþætti Bandaríkjanna – þvert gegn vilja sínum – og gerir það á sinn einstaka hátt. Og það kemur við kaunin á ýmsum því að Elizabeth er ekki bara að kenna konum að elda samkvæmt lögmálum efnafræðinnar, hún hvetur þær til að breyta lífi sínu.

Þessi frábæra bók birtist hér í heillandi lestri Dominique Gyðu Sigrúnardóttur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 2.990 kr