Heim › ...
Innansveitarkronika eftir undefined - hljóðbók

Innansveitarkronika

Höfundur:

3 klst 49 mín

Um bókina

Innansveitarkronika kom út árið 1970. Sagan er skrifuð í stíl endurminninga og þjóðlegra fræða og greinir einkum frá atburðum í Mosfellssveit á seinni hluta nítjándu aldar. Þeir snúast um það að yfirvöld vilja leggja niður kirkju á Mosfelli þar sem haus Egils Skallagrímssonar er grafinn.

En bændur í sveitinni una því ekki og tekst að bjarga klukku kirkjunnar og geyma í fjóshaug uns að því kemur löngu síðar að Mosfellskirkja rís á ný til fyrri vegsemdar fyrir tilverknað fóstursonarins á Hrísbrú, Stefáns Þorlákssonar. Inn í þessa frásögn fléttast saga Guðrúnar Jónsdóttur af því er hún villtist á heiðinni um vor með brauðið dýra. Hún lá úti í nokkur dægur en brauðið var ósnert í skjólunni.

Höfundur les. Hljóðritun frá 1979.

Lestrar Halldórs Laxness úr safni RÚV eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur skáldsins.

Hlusta hvar sem er

  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
Hlustaðu í appinu