Heim › ...
Iðrun eftir Hanne-Vibeke Holst - hljóðbók

Iðrun

19 klst 34 mín
Vaka-Helgafell

Um bókina

Iðrun er saga fjögurra kynslóða Tholstrup-ættarinnar og spannar sjötíu ár, saga sem einkennist af einlægri ást, ástríðum og metnaði en líka blekkingum og lygum sem eitra líf fjölskyldunnar.

Ættfaðirinn Thorvald er vinsæll prestur á Jótlandi þegar Þjóðverjar hernema Danmörku. Brennandi andstaða hans í stólræðum vekur heift Þjóðverja og hann þarf að fara huldu höfði. Samband hans við félaga í andspyrnuhreyfingunni hefur afleiðingar sem hann segir fjölskyldu sinni ekki frá þegar stríðinu lýkur.

En Leo, annar tvíburasona hans, kemst að leyndarmálinu og getur ekki fyrirgefið föður sínum – þó að hann nauðugur viljugur endurtaki blekkingaleikinn í sínu lífi.

Dóttur Leos, Helenu, gengur allt í haginn en einnig hún hefur geymt með sjálfri sér óþægilegt leyndarmál sem hún neyðist til að horfast í augu við einn örlagaríkan sólarhring í september árið 2011.

Hanne-Vibeke Holst (f. 1959) hefur skrifað fjölda skáldsagna og er einn vinsælasti rithöfundur Danmerkur. Iðrun birtist hér í dásamlegum lestri Láru Sveinsdóttur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr