Heim › ...
Í Mánaljósi: Ævintýri Silfurbergþríburanna eftir Kristín Helga Gunnarsdóttir - hljóðbók

Í Mánaljósi: Ævintýri Silfurbergþríburanna

6 klst 30 mín
Kristín Helga Gunnarsdóttir

Um bókina

Í Mánaljósi hefur undirtitilinn „Ævintýri Silfurbergsþríburanna". Það eru 12 ára gamlir þríburar, Íris Ína, Ísabella og Júlíus, sem eru aðalpersónur sögunnar og spannar frásögnin af ævintýrum þeirra rúmlega hálft ár en aðallega segir frá einu sumri sem þau eyða í Kaupmannahöfn. Í upphafi sögunnar eru þau fremur óhamingjusöm börn forríkra hjóna sem ausa yfir þau efnislegum gæðum en hafa engan tíma og takmarkaða ástúð að veita. Þau njóta hins vegar ástar og umhyggju filippeyskrar vinnukonu, Rósalindu.

Margar litríkar persónur koma við sögu í þessari bók. Þríburarnir, sem hafa hver sín persónueinkenni, eru sendir hálfnauðugir til sumardvalar hjá ömmusystur sinni, Emilíu Sólborgu, svo að foreldrarnir geti gengið frá skilnaði sínum, sölu og skiptingu eigna, og unnið sína vinnu og yfirvinnu án þess að börnin séu að flækjast fyrir. Emilía frænka býr í Mánaljósi í Friðarbæ, sem er hverfi í Kaupmannahöfn þar sem búa gamlir hippar og alls kyns furðufuglar.

Í Mánaljósi er bók sem ætluð er eldri lesendum en fyrri bækur Kristínar Helgu. Þrátt fyrir að andstæðurnar séu hreinar og klárar þá er fjallað um alvarleg málefni í þessari bók; málefni sem snerta gildi og verðmætamat, hamingju og óhamingju, líf og dauða.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán