Heim › ...
Í leyndri gröf eftir Viveca Sten - hljóðbók

Í leyndri gröf

10 klst 50 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Mannabein finnast á Telegrafholmen, lítilli eyju rétt norður af Sandhamn-eyju. Grunsemdir vakna um að þetta séu líkamsleifar tveggja kvenna sem hurfu sporlaust fyrir tíu árum.

Thomas Andreasson tekur við rannsókn málsins. Nora Linde er í veikindaleyfi. Hörmulegt mál gekk nærri henni og hún ásakar sjálfa sig. Þegar hún fréttir af beinafundinum fer hún að rannsaka málið sjálf án þess að hafa samráð við Thomas. Þá reynir á samband æskuvinanna og ekki síður þegar farið er að róta í gömlum leyndarmálum.

Einn íbúi á Sandhamn veit hver sannleikurinn er. Þarf að fórna fleiri mannslífum áður en hulunni er svipt af honum?

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán