
Í klóm mansals
Um bókina
Frá þriggja ára aldri var Sarah Forsyth misnotuð kynferðislega af fólkinu sem átti að gæta hennar og vernda.Á ótrúlegan hátt tókst henni að þrauka skelfilega barnæsku sem skildi eftir sig djúp sár í sálarlífi hennar.
En hún náði að skapa sér nýtt og ánægjulegt líf sem leikskólaliði.Dag einn sá Sarah auglýsingu í dagblaði þar sem auglýst var eftir starfsfólki í leikskóla í Amsterdam. Hana langaði að hefja nýtt líf fjarri Newcastle og öllum hryllilegu minningunum þaðan og hikaði ekki við að sækja um. Hún var rétt lent í Amsterdam þegar líf hennar hrundi til grunna.
Það var enginn leikskóli og ekkert starf: Sarah var fórnarlamb kynlífsmansals.Sarah var þvinguð til að neyta kókaíns og kannabis og henni var ógnað með byssum. Innan skamms var hún farin að vinna sem vændiskona í Rauða hverfinu í Amsterdam og hún breyttist úr ungri, saklausri enskri stúlku í örvæntingarfulla og logandi hrædda krakk hóru. Viti sínu fjær af ótta um hvað hórmangararnir myndu gera henni ef þeir stæðu hana að tilraunum til flótta, tók það Söruh næstum heilt ár að finna styrkinn til að berjast og flýja.
Ólíkt mörgum þeirra stúlkna sem hún neyddist til að búa og vinna með, komst hún í burtu. Sarah Forsyth er sigurvegari. Þetta er átakanleg saga hennar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app