
Um bókina
Í norðurhluta Svíþjóðar virðast alþjóðleg stórfyrirtæki ætla að fara ránshendi um viðkvæmar náttúruauðlindir. Miklir peningar eru í spilinu og hafa glæpahópar hreiðrað um sig í þessu villta vestri nútímans. Mikael Blomquist er á leið norður í brúðkaup dóttur sinnar en smám saman sogast hann í atburðarás sem leiðir hann aftur á braut rannsóknarblaðamannsins. Lisbeth Salander er einnig á leið norður. Rétt eina ferðina liggja leiðir þeirra saman í óvæntri en æsispennandi fléttu samsæra og svika. Ný bók sænska metsöluhöfundarins Karin Smirnoff í Millennium-bókaflokknum, sem Stieg Larsson hrinti af stokkunum, hefur slegið í gegn víða um heim.
Sigurður Þór Salvarsson íslenskaði. „Lisbeth Salander snýr aftur – og hefur kannski aldrei verið betri ... Frábærlega vel gert.“ – Lee Child „Algerlega frábært sjálfstætt framhald á seriunni.“ – Femina „Það var snilldarbragð að láta Karin Smirnoff taka við keflinu af David Lagercrantz. Enginn hefði getað gert þetta betur – nema ef vera skyldi Stieg Larsson sjálfur.“ – Uppsala nya Tidning „Æsispennandi söguþráður ... Millennium-bókaflokkurinn mun eiga langt líf fyrir höndum.“ – Svenska Dagbladet „Ég gleypti bókina í mig.
Smirnoff er hún sjálf í sporum Stieg Larssons.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app