Heim › ...

Í hvítri hvíld: saga Reynistaðabræðra
Höfundur: Bjarni Skúli Ketilsson (Baski)
Flytjandi: Arnar Jónsson
38 mín
Bjarni Skúli Ketilsson (Baski)
Um bókina
Íslensk öræfi eru ein til frásagnar um marga válega atburði sem þar hafa átt sér stað. Menn hafa orðið úti á öllum tímum og verða enn. Ein frægasta og um leið dularfyllsta sagan er kennd við Reynistaðarbræður sem bráðungir urðu úti á Kili, ásamt þremur öðrum, á leið heim úr fjárkaupaleiðangri árið 1780.
Enginn veit með vissu hvað kom fyrir en óhugnanlegt þótti mörgum að lík bræðranna hurfu úr tjaldi leiðangursmanna og af fyrirliða leiðangursins fannst ekkert nema önnur höndin miklu norðar.
Reimt þótti á Kili eftir þetta og lögðust ferðir manna af um þennan fjölfarna fjallveg í meira en hundrað ár.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app