Heim › ...
Hvíldin eftir Ragnheiður Gestsdóttir - rafbók

Hvíldin

Rafbók
Bókabeitan

Um bókina

Rúm vika í hvíldarinnlögn á dvalarheimilinu Vin. Kannski ekki beinlínis tilhlökkunarefni, en hún er bundin við þennan fjárans stól og getur ekki verið ein heima meðan sonurinn fer til útlanda. Og hún hefur alveg nóg að lesa og verkefni sem þarf að ljúka.

Það er verst að maturinn er nánast óætur … Enn ein vinnuvikan fram undan. Langir dagar, of lítill tími með barninu, reddingar til að geta tekið aukavaktirnar. Lífið er línudans og það má ekkert út af bera. Einn óvæntur gluggapóstur getur kollvarpað tilverunni … Það er margt sem aðskilur þær prófessor MMM og Piu; áratuga aldursmunur, stétt og staða.

En þegar elliheimilið verður vettvangur glæps kemur óvænt vinátta þeirra til bjargar. Og tveir skarpir kollar, annar hvítur og hinn blár, leggjast á eitt við að ráða fram úr flókinni morðgátu. HVÍLDIN er fimmta glæpasaga Ragnheiðar Gestsdóttur. Fyrri bækur hennar eru Úr myrkrinu, Farangur, Blinda og Týndur. Farangur hlaut Blóðdropann árið 2021 og var tilnefnd til Glerlykilsins 2023. Úr myrkrinu: „Bókin er átakanleg og efnistökin þung, en Ragnheiður er frábær penni og skilar efninu af stakri fagmennsku.“ Lestrarklefinn, 2020 Farangur: „… spennan helst í hámarki fram á síðustu blaðsíðu.“ María Bjarkadóttir, 2021 „Farangur staðfestir það að Ragnheiður er fantagóður glæpasagnahöfundur.“ Umsögn dómnefndar, Blóðdropinn 2021. „Af okkar glæpasagnahöfundum er hún í hópi með þeim bestu.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan 2025

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.540 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.