
Hvernig gastu gert þetta?
Um bókina
Dana var aðeins fimm ára gömul þegar hún komst að því að hún gæti engum treyst. Það hörmulegasta var að móðir hennar hafði svikið hana á ótrúlegan hátt. Dana og litla systir hennar voru árum saman fórnarlömb eins stærsta barnaníðingshrings sem komist hafði upp um á Bretlandi. Móðir þeirra hafði ekki verndað þær. Martröð Dönu er nú loks á enda en hún hefur barist fyrir því að senda þau sem misþyrmdu henni í fangelsi. Sannleikurinn kom í ljós í júní 2007. Dana sýndi mikinn kjark þegar hún bar vitni gegn móður sinni.
Konan sem hafði látið Dönu og systur hennar líða ómældar kvalir var dæmd í tólf ára fangelsi. Það var ein erfiðasta stund Dönu um ævina. En umheimurinn, sem var sleginn, var neyddur til að opna augun fyrir því sem hafði hent Dönu. Hún komst lífs af og þetta er sagan af því.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app