Heim › ...

Um bókina
Þegar Jón Þröstur Jónsson kom til Dyflinnar í febrúar 2019 stóð til að hann myndi verja fríinu sínu í að spila póker og ferðast með konunni sinni. Þess í stað hvarf hann sporlaust. Nú, sex árum síðar, taka RÚV og RTÉ á Írlandi höndum saman við rannsókn málsins í hlaðvarpinu Where is Jón? sem birtist hér í íslenskri aðlögun. Where is Jón? má finna á hlaðvarpsveitum og í spilara RÚV þar sem einnig má finna útgáfu með íslenskum texta.
Þáttaröðin Where is Jón? er skrifuð og framleidd af Önnu Marsibil Clausen og Liam O’Brien. Tónlistin er samin og flutt af Úlfi Eldjárn ásamt Unni Jónsdóttur á selló. Hljóðvinnslu Hvar er Jón annast Jón Þór Helgason.