
Húsið okkar brennur – baráttusaga Gretu og fjölskyldunnar
Höfundur: Malena Ernman, Svante Thunberg, Greta Thunberg, Beata Ernman
Flytjandi: Lára Jóhanna Jónsdóttir
Þýðandi: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Um bókina
Greta Thunberg hefur verið á allra vörum síðan hún hóf verkfallsbaráttu sína til að þrýsta á aðgerðir í loftslagsmálum. En hvernig varð sænsk unglingsstúlka, sem hafði ekki getað talað við neinn utan fjölskyldunnar í mörg ár, að heimsþekktri baráttu- og ræðukonu?
Í þessari bók segja hún og fjölskylda hennar sögu sína, sögu af daglegu lífi sem snýst um Aspergerheilkenni, átröskun, ADHD, óperusöng og – ekki síst – umhverfisvernd. Húsið okkar brennur er einlæg og óhefðbundin frásögn af glímu fjölskyldunnar við óvægið samfélag nútímans. Það er móðir Gretu, Eurovisionstjarnan Malena Ernman, sem lýsir því hvernig dóttir hennar yfirsteig mikla erfiðleika til að berjast gegn stærstu ógn sem nokkurn tímann hefur steðjað að mannkyninu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.490 kr
Sækja app