Heim › ...
Hrímland: Skammdegisskuggar eftir Alexander Dan Vilhjálmsson - hljóðbók

Hrímland: Skammdegisskuggar

15 klst 12 mín
Mál og menning

Um bókina

Hrímland er undir hælnum á erlendu stórveldi og höfuðborgin Reykjavík er umlukin háum múrum. Kalmar mergsýgur þessa afskekktu nýlendu og nýtir seiðmagnið sem býr í jörðinni í eigin þágu. Yfir borginni vomir Loftkastalinn, óhugnanlegt fljúgandi hervirki sem aldrei sefur. Miskunnarlaus aðskilnaðarstefna Trampes greifa hyglar mannfólki á kostnað annarra tegunda og huldufólk, marbendlar og náskárar mega lepja dauðann úr skel.

Sæmundur er metnaðarfullur galdramaður sem hefur verið rekinn úr Svartaskóla fyrir stórhættulegt fikt við svartagaldur. Róttæki huldufólksblendingurinn Garún vill losa Hrímland undan kúgurunum og skapa réttlátara samfélag hvað sem það kostar. Og til þess að knýja fram byltinguna sem hún þráir leitar hún til Sæmundar – með ófyrirséðum afleiðingum.

Hrímland: Skammdegisskuggar er mögnuð og myrk samtímafurðusaga sem nálgast þjóðsagnaarfinn og Íslandssöguna á ferskan og afar frumlegan hátt. Sagan kom upphaflega út 2014 undir heitinu Hrímland en höfundurinn umskrifaði hana 2019 fyrir hið virta breska forlag Gollancz og er það sú útgáfa sem hér lítur dagsins ljós. Bókin birtist hér í frábærum lestri Guðmundar Inga Þorvaldssonar.

Alexander Dan hefur skipað sér sess sem einn helsti furðusagnahöfundur landsins. Áður hefur komið út eftir hann skáldsagan Vættir, auk þess sem hann semur söngtexta og þenur raddböndin í svartmálmshljómsveitinni Carpe Noctem.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr