Heim › ...

Um bókina
Hávarður og Maríus eru átta ára og bestu vinir. Einn daginn ætla þeir að selja tombólur og græða haug af peningum en hitta þá Bartek sem er nýfluttur til Íslands frá Póllandi. Það gengur erfiðlega í fyrstu fyrir strákana að tala saman en þeir láta það ekki stöðva sig. Sérstaklega ekki þegar þeir uppgötva að Bartek er á leið í lífshættulegan leiðangur.
Blær Guðmundsdóttir teiknaði myndirnar. Í Ljósaseríunni eru bækur sem eru sniðnar að þörfum nýrra lesenda og kjörnar fyrir þá sem eru að æfa sig í lestri. Bækurnar eru misþungar en hafa allar þægilegt letur og rúmt línubil. Góða skemmtun!
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 490 kr
Sækja app