Heim › ...
Höggið eftir Unnur Lilja Aradóttir - hljóðbók

Höggið

8 klst 58 mín
Veröld

Um bókina

Ung kona vaknar á sjúkrahúsi með höfuðáverka – og hefur auk þess misst minnið. Hún þekkir hvorki tilveru sína né sjálfa sig en fljótlega fær hún á tilfinninguna að eitthvað sé ekki eins og það eigi að vera. Hún leggur upp í ferðalag á vit fortíðar sinnar – viðsjárvert ferðalag þar sem skelfilegir atburðir afhjúpast smám saman.

Unnur Lilja Aradóttir fékk glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir þessa kynngimögnuðu og grípandi sögu þar sem ekkert er sem sýnist. Það eru Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson sem standa að verðlaununum ásamt bókaútgáfunni Veröld.

Í umsögn dómnefndar um söguna segir m.a.: „Höggið er óvenjuleg spennusaga þar sem undarleg tilfinning grípur lesandann strax á fyrstu síðum bókarinnar. Í lifandi en látlausum texta og hnitmiðaðri frásögn nær höfundurinn föstu taki á lesandanum."

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán