
Hljóðin í nóttinni
Höfundur: Björg Guðrún Gísladóttir
Flytjandi: Björg Guðrún Gísladóttir
Um bókina
Eina nóttina vaknaði ég og kallaði á mömmu en það kom ekkert svar. Ég fór fram úr og inn í eldhús, þar var enginn. Samt var eins og einhver hefði verið þarna nýlega; tóbaksfnykur í loftinu, öskubakkinn fullur af stubbum sem sumir voru með varalit, flaska á borðinu með einhverjum vökva. Átakanlegar örlagsögur sem mótuðu líf lítillar stúlku og foreldra hennar á sjöunda áratug síðustu aldar. Hörð lífsbarátta í eymd og niðurlægingu í Höfðaborginni í Reykjavík. Og sársaukafullt uppgjör við margt af því ljótasta sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hljóðin í nóttinni er í senn saga um hyldjúpa sorg og óbilandi lífskraft. Saga sterkrar konu sem brýtur af sér hlekki fortíðarinnar og horfist í augu við það fegursta – en líka það hryllilegasta – í lífinu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app