Um bókina

Nina Swann verður forvitin þegar hún fær samúðarkort frá Nick Radcliffe sem segist vera gamall kunningi nýlátins manns hennar. Nick er traustvekjandi maður með góðan smekk. Bros hans gæti brætt kaldasta hjarta og hann hefur lag á að láta öðrum líða vel. Ash, fullorðinni dóttur Ninu, finnst þó Nick of sléttur og felldur, of fágaður, grunsamlega góður. Hún byrjar að grafa í fortíð Nicks án þess að láta móður sína vita. Það sem hún finnur er vægast sagt óhugnanlegt ...

Martha er blómasali í Folkstone með ástríkum eiginmanni sínum, Alistair og lítilli dóttur þeirra. Undanfarið hefur Alistair þó ferðast sífellt oftar vegna vinnu og horfið dögum saman. Þegar Martha spyr hann út í tíðar fjarvistir hans hefur hann alltaf lögmæta skýringu en hún losnar ekki við tilfinninguna um að eitthvað sé ekki með felldu.

Nina, Martha og Ash þurfa að horfast í augu við átakanlegan sannleika sem er mun myrkari en nokkurn hefði órað fyrir. Allar þrjár eiga eftir að óska þess að þær hefðu tekið mark á sömu viðvöruninni: HLEYPTU HONUM EKKI INN

Lisa Jewell er enskur metsöluhöfundur og fara vinsældir hennar ört vaxandi. Bækur hennar hafa selst í yfir 15 milljónum eintaka og komið út á 30 tungumálum. Hún skrifar æsispennandi sálfræðitrylla sem halda lesandanum á tánum. Þetta er fyrsta bók Lisu Jewell á íslensku.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán