
Hlaðmannamálið
Höfundur: Ýmsir
Flytjandi: Hjálmar Hjálmarsson
Um bókina
Málið sem hér um ræðir, fjallar um innflutning á hassi til Íslands frá Danmörku. Í mörgum fíkniefnamálum nýta höfuðpaurarnir sér neyð annarra til að taka þátt og ef illa fer þá er yfirleitt reynt að koma málum þannig fyrir að þessir ógæfumenn taki á sig alla sök.
Þetta mál var engin undantekning hvað það varðar en þar koma m.a. við sögu hlaðmenn er störfuðu hjá Flugleiðum á Keflavíkurflugvelli. Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app






