Heim › ...
Herra Rokk eftir Ásgeir Tómasson - hljóðbók

Herra Rokk

8 klst 26 mín
Sögur útgáfa

Um bókina

Þegar Rúnar Júlíusson varð nítján ára, mánudaginn 13. apríl 1964, var hann þegar orðinn poppstjarna á íslandi. Lék á bassa og söng í vinsælustu unglingahljómsveit landsins, átti sæti í meistaraflokksliði heimabæjarins í knattspyrnu og fagnaði síðsumars Íslandsmeistaratitlinum ásamt félögum sínum. - Hann var reyndar mestan hluta sumarsins í öðrum landshlutum en knattspyrnuliðið og spilaði á dansleikjum með hljómsveitinni, sextíu sinnum á sex dögum, segir sagan. Mætti samt alltaf til knattspyrnuleiks. - Hann og kærastan hans eignuðust þetta sumar sitt fyrsta barn - hún var vel að merkja valin fegurðardrottning Íslands nokkrum árum síðar.

Saga eins ástsælasta tónlistarmanns íslenskrar poppsögu, Guðmundar Rúnars Júlíussonar er hér skráð árið 2005 en Rúni Júl lést þremur árum síðar, 5. desember 2008. Rúnar hefði fagnað 75 ára afmæli sínu 13. apríl 2020.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán