
Heimanfylgja - Skáldsaga um uppvöxt Hallgríms Péturssonar byggð á heimildum um ættfólk hans og samtíð
Höfundur: Steinunn Jóhannesdóttir
Flytjandi: Steinunn Jóhannesdóttir
Um bókina
Hvað gerði Hallgrím Pétursson að stórskáldi? Hver var heimanfylgja hans? Móðir og faðir, fjölskylda, vinir og fjölskrúðugt mannlíf á Hólum í Hjaltadal – allt vaknar þetta hér til lífsins í stórbrotinni náttúru Skagafjarðar.
Frásögnin fylgir drengnum frá fæðingu og til þess er hann heldur af landi brott á unglingsárum. Af alúð og hugkvæmni eru stopular heimildir nýttar um sálmaskáldið og þá hörðu öld sem fóstraði hann. Galdrabrenna, eldsumbrot og Tyrkjarán, valdatogstreita höfðingja og barátta almúgans við óblíða náttúru mynda baksvið atburðanna þegar næm barnssálin tekst á við áföll og sviptingar í eigin lífi – með hjálp einstakrar náðargáfu: skáldskaparins.
Steinunn Jóhannesdóttir hefur rannsakað líf og skáldskap Hallgríms Péturssonar um árabil. Heimanfylgja er önnur skáldsaga hennar; áður hefur hún skrifað um ævintýralegt lífshlaup eiginkonu Hallgríms.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app