
Gummi
Höfundur: Guðmundur Hafsteinsson, Snorri Másson
Flytjandi: Atli Rafn Sigurðarson
Um bókina
Hér er sögð stórbrotin saga Guðmundar Hafsteinssonar (Gumma) en hann er líklega sá Íslendingur sem hefur náð lengst á framabraut í tæknigeiranum í Kísildal í Kaliforníu. Viðburðaríkum ferli Gumma er fylgt eftir, allt frá því að hann fékk ungur að aldri áhuga á forritun og þar til hann komst til æðstu metorða hjá tæknirisanum Google.
Ferðalagið úr stofunni í Breiðholti á níunda áratugnum og alla leið í fremstu víglínu gervigreindarbyltingarinnar hjá bandarískum tæknirisa er ein áhugaverðasta ævisaga sem komið hefur út hér á landi um nokkurt skeið. Hér má lesa um kynni Gumma af mestu áhrifamönnum greinarinnar, eins og Steve Jobs hjá Apple, Mark Zuckerberg hjá Facebook-Meta og stofnendum Google.
Snorri Másson, blaðamaður og nú þingmaður, skrifar hér lipra frásögn þar sem hlustandinn fær innsýn í hvernig tæknifyrirtækin eru uppbyggð og rekin. Ferill Gumma, sem nú er stjórnarformaður Icelandair, er saga af tækniframförum 21. aldar og í raun sérlega eftirtektarverð saga, sem efnisins vegna allir eldri en tvítugir geta vel tengt við.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app