Heim › ...
Gullin ást eftir Danielle Steel - hljóðbók

Gullin ást

Höfundur: Danielle Steel

Flytjandi: Matthías Harðarson

Þýðandi: Skúli Jensson

8 klst 9 mín
Saga Egmont

Um bókina

Líf þriggja para fléttast saman í voninni um að eignast barn. En verður draumurinn einhvern tímann að veruleika? Danielle Steele sýnir hér drauma og þrár fólks, sorg þeirra og missi eins og henni er einni lagið.

Diana og Andrew Douglas ætla sér að búa til barn í brúðkaupsferðinni. Löngu seinna, þegar barnið sem þau dreymir um er enn ekki í sjónmáli neyðast þau til að horfast í augu við það hverju þau eru tilbúin að fórna til að láta drauminn verða að veruleika.

Charlie Winwood vill fylla húsið af börnum, en kona hans, Barbie Mason, vill aðeins skemmta sér. Þegar Charlie fær niðurdrepandi fréttir þarf hann að endurskoða líf sitt, ekki síst sambandið við konu sem hefur ekki sömu markmið í lífinu og hann.

Það eru nítján ár á milli Pilar Graham og Brad Coleman og hann á þegar tvö uppkomin börn. Þegar þau gifta sig fer Pilar skyndilega að sjá eftir að hafa ekki eignast sín eigin börn. Og þá vaknar spurningin: Eiga maður sem er að verða afi og kona um fertugt yfir höfuð að reyna að eignast börn saman?

Bókin var aðlöguð að sjónvarpi árið 1995, undir upphaflega titlinum Mixed Blessings.

Danielle Steel er mest seldi rithöfundur á heimsvísu. Hún hefur skrifað yfir 200 bækur sem hafa selst í meira en billjón eintökum. Allar bækur Steel hafa ratað á metsölulista víða um heim, þar með talið New York Times, Wall Street Journal og Sunday Times.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán