Heim › ...
Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir eftir Brynhildur Þórarinsdóttir - hljóðbók

Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir

3 klst 54 mín
Mál og menning

Um bókina

Hvernig litist þér á sumarfrí í eyðiþorpi – þar sem ekkert nammi fæst? Nei takk! hefðu systkinin Gunnar og Gyða sagt einum rómi. Þau voru bara ekki spurð. Sem betur fer rekast þau á dularfullu skepnuna Gulbrand Snata og það var líka gott að þau tóku með sér talstöðvar. Þá geta þau njósnað um mömmu og geimverurnar.

Svo birtist bréfið frá kafteini Kolskeggi … Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir er spennandi saga fyrir lestrarhesta á aldrinum 7 til 12 ára. Brynhildur Þórarinsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir barnabækur sínar og hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir söguna Leyndardómur ljónsins. Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytti.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.690 kr