
Guðni – Af lífi og sál
Höfundur: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Flytjandi: Jóhann Sigurðarson
Um bókina
Guðni Ágústsson hefur lifað dramatísku lífi. Hann ólst upp í frumstæðu bændasamfélagi en varð ráðherra á 21. öldinni, hann var feiminn piltur í Héraðsskólanum á Laugarvatni en varð einn vinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar; hann lenti í hringiðu mikils valdabrölts þar sem átti að koma honum út úr pólitík en stóð eftir sterkari en áður. Þessi ævisaga hans kom út árið 2007 og er nú loks fáanleg á hljóðbók í lestri Jóhanns Sigurðarsonar.
Í bókinni Guðni – Af lífi og sál ræðir hann umbúðalaust um viðkvæm pólitísk deilumál liðinna ára, bæði innan Framsóknarflokksins og á vettvangi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Í henni er einnig fjallað um einkalíf Guðna, meðal annars sagðar skemmtilegar sögur frá uppreisn æskunnar á sjöunda áratugnum, greint frá kostulegum uppákomum í starfi hans sem þingmanns og ráðherra og dregnar upp lifandi myndir af uppvexti hans í sextán systkina hópi á Brúnastöðum um og upp úr miðri síðustu öld.
Sigmundur Ernir Rúnarsson byggir bókina á samtölum sínum við Guðna og samferðamenn hans, birtum og áður óbirtum heimildum, meðal annars minnisblöðum Guðna, sem ekki hefur verið vitnað til áður.
Hér leggur Guðni Ágústsson spilin á borðið og segir söguna eins og hún horfir við honum.
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app