
Guðni á ferð og flugi
Höfundur: Guðjón Ragnar Jónasson og Guðni Ágústsson
Flytjandi: Guðni Ágústsson
Um bókina
Guðni Ágústsson er annálaður sagnamaður og einn vinsælasti tækifærisræðumaður þjóðarinnar. Í hugum margra er hann enn hinn eini sanni landbúnaðarráðherra Íslands – og um leið ötull talsmaður landsbyggðarinnar.
Hér fer Guðni með lesandann í ferðalag um hinar dreifðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi. Fyrir utan að vera skemmtilegir og forvitnilegir viðmælendur fæst það við spennandi og oft og tíðum nýstárleg viðfangsefni sem styrkja lífið í sveitunum. Í þessum heimsóknum er Guðni yfir og allt um kring og hin landskunna „guðníska" skýtur hvað eftir annað upp kollinum.
Guðjón Ragnar Jónasson fylgdi Guðna á þessum ferðum og hefur skrásett á aðgengilegan og grípandi hátt það sem á daga þeirra dreif.
Skemmtileg, fyndin og um leið upplýsandi bók um lífið í sveitum landsins sem rígheldur lesandanum í fylgd með Guðna Ágústssyni frá Brúnastöðum sem les hér sjálfur af sinni alkunnu snilld.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app