
„Grímuræningjarnir“ voru svellkaldir
Höfundur: Ýmsir
Flytjandi: Hjálmar Hjálmarsson
Um bókina
Í eftirlitsmyndavélinni sáu rannsóknarlögreglumennirnir mennina þrjá koma út úr húsinu. „Sá langi“ settist undir stýri, „sá feiti“ í farþegasætið við hlið hans og „sá ungi“ í aftursætið. Bíllinn var settur í gang og síðan óku þeir út á eina veginn sem þarna var, í átt að hlöðunni og lögreglumönnunum. Þegar bíllinn var kominn milli hlöðunnar og íbúðarhússins var látið til skarar skríða. Strákarnir í lögreglubílnum voru tilbúnir, rannsóknarlögreglumennirnir voru tilbúnir. Margra daga bið var fljótlega lokið.
En byrjum á byrjuninni.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app