
Grímsævintýri: Ævisaga hunds
Höfundur: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Flytjandi: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Um bókina
Hér fara æviminningar hundheppna hamingjudýrsins Gríms Fífils. Hann var fuglaveiðihundur sem veiddi aldrei fugla þótt hann gerði stundum flugu mein. Besta og Fúli völdu hann sérstaklega upp úr hvolpabæli úti í bæ og hann bjó með þeim og krílunum alla sína hundstíð. Grímur Fífill fór í hundaskóla en það átti ekki við hann. Samt kenndi Grímur Bestu og Fúla miklu meira en þeim tókst nokkru sinni að kenna honum. Góðir vinir ganga ekki endilega allir á tveimur fótum.
Grímur Fífill fól Kristínu Helgu Gunnarsdóttur að rita ævisögu sína, enda er hún með áratuga reynslu í að tala við hunda. Síðan bað hann Halldór Baldursson að teikna myndirnar því hann kann líka hundamál.
„Það er frásagnarmáti bókarinnar sem gerir hana eftirminnilega og sérstaklega skemmtilega." — Úr umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app