Heim › ...
Goggi og Grjóni — Vel í sveit settir eftir Gunnar Helgason - hljóðbók

Goggi og Grjóni — Vel í sveit settir

Höfundur: Gunnar Helgason

Flytjandi: Gunnar Helgason

3 klst 57 mín
Himnaríki ehf

Um bókina

Hér er komin seinni bókin um þá vini, Gogga og Grjóna.

Þetta er önnur bókin sem Gunnar Helgason skrifaði og kom út árið 1995 og er nú loksins komin á hljóðbók.

Goggi og Grjóni búa í sömu blokk, á sömu hæð og eru bestu vinir. Þeir eru ekki hræddir við að lenda í ævintýrum og ákveða meira að segja að fara í sveit, til frænda og frænku Grjóna.

Þar gerast sko ævintýrin. Þá vinina langar mikið að sanna sig sem sveitamenn en það gengur vægast sagt allt á afturfótunum. Kálfarnir, mjólkurbílstjórinn, veghefillinn og stóðhesturinn ... ekkert og enginn af þessum hlutum gerir það sem þeir eiga að gera!

NÆSTUM ekkert af þessum atburðum gerðist í raun og veru ... nema þetta með klóakið!

VARÚÐ! Ekki stíga á ljósgræna bletti í mýri!

Þessi bók er aaallt öðruvísi en fyrri bókin um Gogga og Grjóna en er samt ekki minna skemmtileg.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán