Heim › ...

Um bókina
Ef þér finnst gaman að hlusta á bækur eftir Gunnar Helgason er hérna algjör bingó lottó vinningur á ferð fyrir þig því hún hefur ekki verið fáanleg á hljóðbók í mörg herrans ár.
Goggi og Grjóni er fyrsta bókin sem Gunnar skrifaði – kom út árið 1992 - og er eins og aðrar bækur eftir hann, fyndin og skemmtileg. Og já, hún er mjög spennandi á köflum.
Goggi og Grjóni búa í sömu blokk, á sömu hæð og eru bestu vinir. Þeir eru ekki hræddir við að lenda í ævintýrum og segja jafnvel versta strætóbílstjóra í heimi stríð á hendur.
NÆSTUM allt sem gerist í þessari bók gerðist í alvörunni þegar Gunnar var lítill strákur í blokk í Háaleitishverfinu í Reykjavík.
VARÚÐ! Ekki gera allt sem Goggi og Grjóni gera!!!
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app