
Gleðilega fæðingu - Vellíðan, valkostir og verkjastilling í fæðingu
Höfundur: Þorbjörg Marinósdóttir, Hildur Harðardóttir, Aðalbjörn Þorsteinsson
Flytjandi: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Um bókina
Gleðilega fæðingu er bók þar sem hulunni er svipt af leyndardómum fæðingarstofunnar og gagnast jafnt verðandi foreldrum og öllu áhugafólki um fæðingar.
Rannsóknir sýna að allur fæðingarundirbúningur styrkir verðandi móður, dregur úr kvíða og eykur líkur á jákvæðri upplifun af fæðingunni. Hér er fjallað um aðdraganda fæðingar, valkosti þegar kemur að fæðingarstöðum og verðandi foreldrum gefin góð ráð til að þeir geti notið til fullnustu þess kraftaverks sem fæðingin er.
Eftir fæðingu dóttur sinnar birti Þorbjörg Marinósdóttir pistil um ólík viðhorf til mænurótardeyfingar sem vakti gríðarmikla athygli. Þessa bók skrifar hún ásamt Hildi Harðardóttur fæðingarlækni og Aðalbirni Þorsteinssyni svæfingalækni. Fjallað er ítarlega um ólíkar leiðir til að lina fæðingarverki, ekki síst mænurótardeyfingu sem leitast er við að gefa glögga mynd af út frá nýjustu rannsóknum.
Bókin birtist hér í frábærum lestri Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur.
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app