Heim › ...
Gerðu það, bjargaðu mér eftir Linda Watson-Brown - hljóðbók

Gerðu það, bjargaðu mér

8 klst 49 mín
Lind & Co

Um bókina

Gerðu það, bjargaðu mér er saga um hrikalega misnotkun föður á dóttur sinni sem í kjölfarið fæddi tvö börn sem getin voru í þessari misnotkun.Faðir Mandy var álitinn máttarstólpi í samfélaginu en enginn vissi af því sem átti sér stað bak við luktar dyr heimilisins. Hann nauðgaði dóttur sinni reglulega, fjórum sinnum í viku frá því hún var 11 ára gömul. Hann þröngvaði sér upp á hana jafnvel þegar hún var barnshafandi.

Eftir að hafa verið vísað á bug og hunsuð árum saman fann Mandy loksins manneskju sem trúði henni og hjálpaði henni við koma föður hennar fyrir rétt og láta hann svara til saka fyrir gjörðir sínar. Þessi ótrúlega kona segir nú sögu sína í þeirri von að varpa ljósi á þann hrylling sem svo mörg börn búa við ásamt því að uppræta þá smán sem getnaður eftir nauðgun getur haft í för með sér.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán