Heim › ...

Um bókina
Í opinskárri ævisögu sinni veitir Geir einstaka innsýn í baksvið stjórnmálanna, meðal annars mánuðina örlagaríku haustið 2008, og er óhætt að segja að þar komi ýmislegt á óvart. Hann fjallar einnig ítarlega og gagnrýnið um landsdómsmálið. Geir skrifar af einlægni um einkalíf sitt, uppvöxt í Vesturbæ Reykjavíkur, MR og námsár í Bandaríkjunum en einnig dramatíska atburði úr æsku sem hann hefur aldrei rætt opinberlega áður, þar á meðal viðkvæm fjölskyldumál. Geir styðst við margvísleg gögn úr sínu einkasafni – sendibréf, tölvupósta, símskeyti, smáskilaboð, minnisblöð og dagbækur en einnig myndir.
Fæst af því hefur áður komið fyrir almenningssjónir.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app