
Um bókina
Sem ungur drengur í Dölunum var Tómas R. Einarsson hugfanginn af harmonikkuleikurum og bítlahljómsveitum héraðsins. Seinna átti hann eftir að komast í tæri við kontrabassa og djassmúsík og þá varð ekki aftur snúið. Hið sama gerðist þegar kúbönsk músík greip hann heljartökum. Í allri sinni tónsköpun hefur honum auðnast að rjúfa í senn hefðir og ná eyrum alþýðu.
Í þessum bráðskemmtilegu minningum kynnumst við enn einni hlið á Tómasi: sagnamanninum ritfæra sem kann að fanga fólk í einni mannlýsingu og skapa fjörlegar senur með hárfínni blöndu af hlýju og húmor, sem beinist ekki síst að honum sjálfum. Samferðamenn, þekktir og óþekktir, lifna hér á síðunum sem bæði hafa að geyma samfélagslýsingu og persónulega sögu um sorgir og gleði.
Hljóðbókarútgáfan hefur að geyma hljóðmynd með tónlist Tómasar sem fléttast lipurlega við texta bókarinnar og töfrar fram einstaka stemningu við hlustun.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 3.990 kr
Sækja app