Heim › ...
Gæska eftir Eiríkur Örn Norðdahl - hljóðbók

Gæska

8 klst 46 mín
Mál og menning

Um bókina

Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns: Það skíðlogar í Esjunni og reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur hrapa ofan af byggingum og fletjast út á gangstéttarhellum. Ástandið fær svo á Halldór að hann læsir sig inni og skrópar í þinginu. En þegar ung marokkósk stúlka biður hann um að hjálpa sér að leysa foreldra sína úr klóm íslensku ríkisstjórnarinnar öðlast líf hans áður óþekktan tilgang.

Gæska er ótrúlega hugmyndarík og fyndin skáldsaga um allt sem skorti á Íslandi síðustu ár: Jafnrétti, bræðralag og meðalhóf – og allt hitt sem nóg var af: Græðgi, heimsku og fordóma. Ímyndunarafli Eiríks Arnar Norðdahl halda engin bönd og hér nýtur stílgáfa hans sín til fullnustu. Höfundur les.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr