Heim › ...
Fyrirheitna landið eftir Einar Kárason - hljóðbók

Fyrirheitna landið

Höfundur: Einar Kárason

Flytjandi: Einar Kárason

7 klst 15 mín
Mál og menning

Um bókina

Fyrirheitna landið er þriðja og síðasta bókin í sagnabálki Einars Kárasonar um fólkið í Thule-kampinum og afkomendur þess, en fyrri bækurnar, Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan, hafa notið fádæma vinsælda og verið þýddar á tungur grannþjóða.

Þeir eru komnir til fyrirheitna landsins, Ameríku. Mundi – sonur Dollýjar, og skáldið og sérvitringurinn Manni, sonur þeirra Fíu og Tóta. Þar hitta þeir Bóbó, hálfbróður Manna. Þeir ætla að vekja upp drauga fortíðarinnar, hitta leifarnar af fjölskyldu Gamla hússins, Badda og móður hans Gógó, fara á slóðir frumherja rokksins, endurlifa gömlu sögurnar og goðsagnirnar og fjörið og lætin. Hver um sig hefur sína reynslu af Karólínu gömlu spákonu og töffaranum Badda og þótt endurfundirnir séu ævintýralegir og galsafengnir fylgir þeim sársauki og erfitt uppgjör.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr