Um bókina

Hvað gerist þegar fjölskylda, sem virðist vera fullkomin, er ýtt fram að brúninni? Thomas og Viv Adler eru öfundsverð; aðlaðandi og í góðri vinnu, eiga vel upp alin börn og snoturlega uppgert hús, uns þau sjá einn morguninn að framdyrapallurinn þeirra hefur verið útataður í eggjum. Thomas heldur því eindregið fram að þetta sé prakkarastrik, að þarna hafi stjórnlausir krakkar verið að verki. Áhyggjur koma þó upp hjá fjölskyldunni þegar reykbombu er kastað inn á lóðina þeirra og skorið á bíldekkin.

Öryggismyndavélar sýna aðeins óljósar myndir af skuggalegum mönnum í hettupeysum. Lögreglumenn gera lítið úr árásunum og telja að eirðarlausir unglingar hafi verið að verki. Adler-fjölskyldan veit ekki hverjir eiga í hlut og getur því ekki spornað við því að úr verði ofbeldi eða eitthvað enn verra. Hver árás eykur á óttann því að allir í fjölskyldunni eiga leyndarmál – ekki aðeins gagnvart umheiminum, heldur einnig innbyrðis. Og leyndarmál geta verið mjög hættuleg …

Hér fer enn ein frábæra spennusagan eftir vinsæla kanadíska rithöfundinn Robyn Harding.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán