Heim › ...
Frontur eftir Johan Hurtig Wagrell - hljóðbók

Frontur

13 klst 47 mín
Sögur útgáfa

Um bókina

1995 hverfur sextán ára stúlka, Gabriella Sorani – Gabby, sporlaust í Kalmar. Tuttugu og fimm árum síðar er málið enn óupplýst.

Í Stokkhólmi er sjónvarpsframleiðandinn Sanna Lundgren í erfiðum vanda eftir að þátttakandi í raunveruleikaþættinum sem hún vann við hengdi sig í beinni útsendingu. Eftir áfallið býðst henni aðeins eitt verkefni, það er að snúa aftur til heimabæjar síns Kalmar og gera heimildarmynd um hið svokallaða Gabby-mál. Sanna, sem var skólasystir Gabby er tilneydd að horfast í augu við drauga fortíðarinnar við vinnslu myndarinnar.

Á sama tíma er Elizabeth Hallman lögreglufulltrúi að búa sig undir að flytja frá Kalmar til að byrja nýtt líf í Stokkhólmi. En eftir því sem hún dregst lengra inn í rannsókn málsins verður erfiðara að færa sig um set.

Hjónin Johan og Johanna Hurtig Wagrell tefla hér fram sinni fyrstu spennusögu, sem hefur hlotið frábærar viðtökur í Svíþjóð og var m.a. tilnefnd til hinna virtu Crime-Time-verðlauna 2024.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán