
Franska sveitabýlið
Um bókina
Del flutti með Ollie, manninum sínum, í fallegt þorp í Provence í Frakklandi til að hefja nýtt líf eftir margra ára glímu við ófrjósemi. Sex vikum eftir komuna eru þau þó enn og aftur að pakka niður búslóðinni. Skyndilega rennur upp fyrir Del, þegar hún horfir á eftir flutningabílnum aka áleiðis til Englands, hvað muni gera hana hamingjusamari … nýtt líf í Frakklandi – án Ollies!
Nú er Del ein, á ekkert annað en sveitasetur í niðurníðslu, húsnæðisskuldir og nokkrar lofnarblómaplöntur. Hvað í ósköpunum á hún að gera? Hún finnur gamla uppskriftabók í forngripasölu hins myndarlega Fabiens og byrjar að baka.
En getur þessi nýja ástríða virkilega hjálpað henni að sleppa tökunum á fortíðinni og finna leiðina að sannri hamingju? Þetta er önnur bók breska rithöfundarins Jo Thomas sem kemur út á íslensku en bækur hennar njóta mikilla vinsælda erlendis og fá jafnan afar góða dóma. Hún skrifar rómantískar bækur um mat, ást, fjölskyldu og skemmtun. Bókum Jo Thomas hefur verið lýst sem „einu stóru faðmlagi.“ Ef þú ert að leita að einhverju „björtu og fyndnu“ er þetta bók fyrir þig.
Hér í frábærum lestri Svandísar Dóru Einarsdóttur. Þýðandi Herdís M. Hübner.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app