Heim › ...
Frá Hollywood til heilunar eftir Guðný Þórunn Magnúsdóttir, Jóhanna Jónas - hljóðbók

Frá Hollywood til heilunar

11 klst 45 mín
Sögur útgáfa

Um bókina

„Einstök bók, full af hlýju, visku og lífsreynslu.“ Jóga Gnarr

Jóhanna Jónas naut lengi velgengni sem leikkona en skipti svo alveg um pól og starfar nú sem eftirsóttur orkuheilari og kennari.

Frá Hollywood til heilunar er áhrifamikil frásögn af lífshlaupi Jóhönnu, sem ung að árum þurfti að kljást við ótal erfiðar áskoranir og áföll; sorg, missi, einelti og átröskun ásamt öðrum veikindum, bæði líkamlegum og andlegum.

Jóhanna var afar næm sem barn og varð síðar mjög leitandi. Árið 1998, á tímabili mikilla erfiðleika, varð hún fyrir sterkri andlegri reynslu sem breytti öllu lífi hennar. Við fylgjum sögu Jóhönnu í gegnum miklar þrengingar og kynnumst einstökum baráttuvilja og þrautseigju sem að lokum leiða til heilunar og nýrrar tilveru. Inn í frásögnina fléttast viska og fróðleikur um möguleika andlegrar vinnu, sjálfshjálpar og lífsþroska.

„Jóhanna brýtur hér blað með frásögn sinni sem er ekki aðeins berskjölduð og heiðarleg ævisaga heldur líka einstaklega vönduð sjálfshjálparbók. Bók sem tekur lesandann í gegnum allan tilfinningaskalann og blæs í brjóst krafti til að leita inn á við og takast á við okkur sjálf.“ Bjarni Snæbjörnsson

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán